Tuesday, January 10, 2006

Gebloggenheim

Jámm

Ég hef ekki nennt að blogga fyrr en núna. Ég hef verið í óbloggi síðan jólaprófin byrjuðu en komst sem betur fer aftur í gírinn núna. Fyrsti gír til að byrja með, sjáum til eftir hann.
Mig langar að koma með svona "7 hlutir sem ég blablabla..." svo fólk kynnist mér aðeins betur, annars finnst mér það ógeðslega gelgjulegt að gera það.

Ég festist í gildru sem bekkjarfélagar lögðu. Ég hef fengið áhuga á póker og fékk mér eitthvað póker-forrit á netinu og spila póker stundum. Ég sökka í póker.
Þetta er orðið aðalsportið í bekknum ásamt málaralist, sem blómstraði fyrir jól.

Já, Gunni!

Ég þoli ekki ofmetin lög eftir frægar hljómsveitir. Ég er bara að segja þetta því það var að spilast eitt þannig lag í iTunes núna. Ég nefni ekki lagið á nafn, því þá myndi ég lenda í skítkasti.

Já já, blogspot með eitthvað kjaftæði núna, vona að ég nái að birta þessa færslu.

Skelli mér bara í þessa 7 heilögu hluti sem leyfir ykkur að kynnast mér betur:

7 hlutir sem ég vil gera áður en ég dey:
1. Eiga of mikinn pening.
2. Fallhlífarstökk og teyjustökk og allt það.
3. Snjóbretti í Ölpunum.
4. Gifta mig. Eignast börn.
5. Uppgötva eitthvað stórt.
6. Skemmta mér
7. Verða frjáls

Og margt fleira!

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Vá harður bekkur að spila póker, þegar ég var í 7. bekk spiluðum við fatapóker!!!

Ég ætla að áður en ég dey, klára RISA Quiznos langloku!
Og þangað til ég geri það má allt hitt bíða, eignast konu og börn, finna lækningu við SARS og svo framvegis.

January 10, 2006 12:42 PM  
Anonymous Anonymous said...

Vá harður bekkur að spila póker, þegar ég var í 7. bekk spiluðum við fatapóker!!!

Ég ætla að áður en ég dey, klára RISA Quiznos langloku!
Og þangað til ég geri það má allt hitt bíða, eignast konu og börn, finna lækningu við SARS og svo framvegis.

January 10, 2006 12:43 PM  
Anonymous Anonymous said...

Málarlist, hehehehhe, málaralist mæ ass! :D

Ofmetin lög eftir ofmetnar hljómsveitir eru frá satani komin

January 14, 2006 3:36 AM  
Blogger Storeide said...

mér líst ekkert á að karlmenn séu að eignast börn. legígræðslur eru víst ekkert voðalega hipp og kúl ennþá. en já bara gúdd lökk.

January 14, 2006 2:59 PM  

Post a Comment

<< Home