Sunday, November 27, 2005

The Helgiville Horror Of Death

Jámm

Nú er svona blogg í gangi. Ég er að blogga. Einhver sagði að ég bloggaði of sjaldan. Hver var það? og já...blogspot hafði verið bilað í heilann mánuð svo það er mín afsökun. Hvað með þig!, feis.
feeis.

Kimono er geggjuð hljómsveit. Ég er að tala um hina íslensku Kimono, en ekki þýsku. Nú er bara vika í jólaprófin og ég er eiginlega ekkert sérstaklega búinn að læra bara fyrir þau. Mér finnst eins og allt reddist. Ég þarf bara að finna tíma þegar ég nenni að læra.

Ég fór á The Exorcism of Emily Rose. Hún er mjög góð. Betri en ég hélt og öðruvísi.
Ég sá líka The Amityville Horror og núna er ég af og til hræddur við húsið mitt. Af hverju ætti ég að vera hræddur við mitt eigið hús? Kannski er illur andi í því sem finnst gaman að hræða saklausa Helga. Kannski.

Ég komst að því í dag að ég á víst að vinna á sjálfum aðfangadegi. Amm. Samt bara um morguninn og til klukkan tvö. Það er ágætt, þá fæ ég örugglega meira á tímann en venjulega.
Ég hlakka til að fá útborgað núna um mánaðamótin. Þá ætla ég að kaupa skó! Þá ætla ég að kaupa Civilization IV! Þá ætla ég að kaupa nýtt belti. Ég veit ekki um fleiri hluti sem ég ætla að kaupa, en ég er hræddur um að öll launin mín munu eyðast á fáeinum dögum og ég mun verða grenjandi í pabba allan Desember um pening.

Og já...Cradle Of Filth er geeeeeðveik hljómsveit, og Dimmu Borgir eru ágætar, allavana það sem ég hef heyrt.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ójá.
Cradle of Filth erugeggjaðir =D sammála.
Og Dimmu Borgir líka.
Danni Filth (söngvari C.O.F) eru geggjaður, snilldar rödd)

November 27, 2005 1:47 PM  
Blogger Gibba Gibb said...

Hallú, Helgi! Ertu lasinn? Gaman að sjá þig blogga. The exorcism of Emily Rose, er mjög uggvekjandi, ég er stundum hrædd um að mjúka góða rúmið mitt fari að soga mig niður í gólf! Það hugsar örugglega: Æj, kommon... bara svona upp á FUNNIÐ!" *Devilish glance at Hildurs backside*
Ha? ætli þaggi barrah?

November 30, 2005 11:42 AM  
Anonymous Anonymous said...

Zest casinos? cover secure of this untested [url=http://www.realcazinoz.com]casino[/url] elbow and bond on up online casino games like slots, blackjack, roulette, baccarat and more at www.realcazinoz.com .
you can also discontinuance our coeval [url=http://freecasinogames2010.webs.com]casino[/url] disdain at http://freecasinogames2010.webs.com and keep a trace in resultant genially touched in the tremendous cheese !
another lone [url=http://www.ttittancasino.com]casino spiele[/url] fling is www.ttittancasino.com , during german gamblers, the lavatory tailored well-wishing online casino bonus.

March 09, 2010 2:50 PM  

Post a Comment

<< Home