Saturday, July 02, 2005

Mér er kalt

Jámm

Úff, í þessari viku vann ég 64 tíma! 13 tíma á dag nema á föstudag, þá bara 8 tíma.
Annars er ég í mjög þægilegum vinnum. Aðalvinnan er í Breiðholtslaug að gera ekki neitt, slá gras og taka til og svona, núna er ég að mála. Svo er það aukavinnan þar sem ég einfaldlega rölti yfir frá sundlauginni yfir í íþróttahúsið og fer í básinn minn, kveiki á sjónvarpinu, logga mig inn á msn og fer svo og opna allar hurðir í húsinu og kveiki öll ljós. Svo ligg ég í stólnum og bíð eftir að fólk komi sér á handboltaæfingar eða hvað sem það er að æfa og ég tek á móti hlutum til að geyma.

Þetta er sem sagt engin vinna, en samt leiðinlegt að vera í burtu 13 tíma á dag.

Ég ákvað að blogga smá, vegna kvörtun sem ég fékk frá ákveðnum Stebba! ég vil ekki afhjhúpa hvaða Stebbi það er, með því að nefna hann á nafn. En ég get sagt ykkur að þetta var hvorki Stebbi Ben, né gaurinn í vinnunni minni sem heitir Hannes...og já, þetta var heldur ekki Stebbi úr vinnunni!

Nú er ég einmitt að hlusta á Deliverance með Opeth, fyrir þá sem vita eitthvað um það!

Ég held að Qotsa tónleikarnir séu á þriðjudaginn. Mig minnir að það hafi verið einhver önnur hljómsveit líka og að hún sé Foo Fighters. Mér er alveg sama þótt að Foo Fighters komi með eitt eða tvö lög, EKKI MEIRA!! ég vil Qotsa!
Ég held að Birkir eigi miða fyrir mig sem ég skulda honum fyrir?

Um daginn var ég að bíða eftir strætó til að koma mér úr þessu hættulega Breiðholti. Ég var búinn að bíða í svona 20 mínútur þegar ég sá mann labba yfir götuna sem strætóskýlið var við. Maðurinn labbaði frekar öruggur yfir götuna því augljóslega var enginn bíll að fara að klessa á hann! En allt í einu sá ég einhverja hvíta Hondu-druslu koma brunandi eins töffarinn í bílnum væri að reyna að drepa manninn sem var á labbi yfir götuna. Maðurinn náði að forða sig yfir götuna rétt í tæka tíð til að forðast dauða. Maðurinn virtist ekkert hissa á þessu og labbaði mjög venjulegur í næstu sjoppu! Hins vegar var ég alveg furðulosta og starði á hann.
Svo stuttu seinna kom þessi maður aftur og inn í strætóskýlið en svo allt í einu hóf hann að syngja einhverja óperu eða eitthvað. Ég var glaður þegar strætó loksins kom og ég gat komið mér heim!!

úff...ég hata tölvur! Systir mín var að kaupa sér einhverja drasl Medion ferðatölvu. Hún sökkar, ég þurfti að formata hana:) og setja allt upp á nýtt:) núna eftir margra tíma væl í systur minni þá er allt orðið eins og það á að vera í tölvunni!

æj ég er bara farinn að vita ekkert hvað ég er að segja hérna, enda búinn að vera að þessu í allan dag:P

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þetta var djúpt. Sérstaklega kommentið með að það hafi verið einhver Stebbi en þó ekki Hannes..:)

July 02, 2005 6:29 PM  
Anonymous Anonymous said...

Veistu það sem hver sem er sagði um eitthvað sen kom því við sem ég er að fara að koma mér að sem tengist þér alveg óneitanlega þar sem þú ert nú einu sinni sá sem ég er að reyna að segja það sem allir hafa verið að tjá sig svo ranglega um sem ætti í rauninni að kalla rógburð því ekkert af þessu er satt og því ætlaði ég að koma þessu bara á hreint við þig í eitt skipti fyrir öll vegna þess að það væri ekki sanngjarnt að þú heyrðir lygasögur frá öðru fólki sem tengist einhverju jafn persónulegu og þessu.

Ég man ekki lengur hvað ég ætlaði að segja, sorry. Flott blogg eða eitthvað :S ...

July 10, 2005 11:31 AM  
Anonymous Anonymous said...

Já þetta var Valborg ég gleymdi líka að nefna það... Gasalega er maður orðinn gamall og kalkaður.

July 10, 2005 11:32 AM  
Blogger Helgibelgi said...

Ert þú karlmaður?
Hugsaðu þinn gang!

July 11, 2005 10:44 AM  

Post a Comment

<< Home